Áramótin

Vorum með eðal kalkún að hætti Möggu í matinn og tókst hann að sjálfssögðu ákaflega vel, vorum með Gunna og Kristínu í mat svo má ekki gleyma að Ella og pjakkarnir hennar voru hérna líka. Yngri guttinn hennar Ellu fór á kostum var að springa úr spenning yfir að fá að sprengja Smile Ella var eitthvað svo viss um að hann gæti ekki þagað eða verið kjur í 25 mínútur að hún bauð honum 10.000 kr ef hann gæti verið kjur og ekki sagt orð í 25 mín, ég hvatti pjakkinn auðvitað áfram og studdi hann í að standa sig og að sjálfssögðu vann hannLoL Ella þurfti að punga út 10 kalli og ekkert múður. Nú áramótasprengingarnar voru að vanda flottar Smile en við bræðurnir vorum með smá sýningu hér Wizard skutum upp smá slatta af tertum auk þess sem við skelltum nokkrum vel völdum flugeldum á loft, veðrið var ekki upp á sitt besta en þetta reddaðist samt og allt fór upp og ekkert vesenWink Ekki var eins gaman í dag þegar ég fór út að taka til eftir sprengjurnarCrying en áður en ég fór kom einhver ljósmyndari og myndaði brunahrúgurnar fyrir framan húsiðWhistling, skil ekkert í þessu þetta var ekkert svo mikiðWhistling Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

Gleðilegt hlaupár

Ólafur fannberg, 1.1.2008 kl. 18:05

2 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Gleðilegt ár kæri vinur

Vatnsberi Margrét, 2.1.2008 kl. 17:54

3 Smámynd: Lauja

Já - á næstu forsíðu DV  -  "sprengjuóður maður í rótgrónu hverfi í Kópavogi" ...... hahahahaha.....   ásamt  risamynd af rústunum ykkar

Lauja, 2.1.2008 kl. 22:59

4 identicon

Hmmmm....ég held að þú hafir nú ekki bara hvatt guttann áfram, held að þú hafir nú líka gert í því að tjúnna upp spennuna  En takk fyrir frábært kvöld.....og þetta var nú ekkert óyfirstíganlegt að kveikja í öllu þessu dóti...bíð fram aðstoð mína í lok þessa árs....

Ella (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband