14.3.2007 | 08:45
KROPPA Í KROPP
Ég er að velta því fyrir mér hvers vegna konur eru alveg brjálaðar í að kroppa alltaf í allt sem þær geta. Þannig er því allavega farið með mína konu að hún er alveg óð
að kroppa í mig, ef að hún sér eitthvað smá sem hægt er að kroppa þá kemur þessi líka skrítni svipur á hana
augun ranghvolfast
liggur við að hún svitni, og hún byrjar að kroppa í mig
eftir smá stund er hún byrjuð að mala eins og köttur slík er ánægjan hjá henni
og ég tala nú ekki um ef að hún finnur fílapensla þá er eins og að hún hafi unnið stóra vinninginn í lottói hún verður öll uppveðruð kveikir ljósið setur sig í stellingar og byrjar að kreista mig og klípa, nú ef ég segi að þetta sé vont þá er bara sagt hvaða vitleysa þetta er ekkert vont vertu bara kyrr ég er alveg að ná þessu. Iðulega líða 5 mínútur þangað til að hún er búin að ná nógu djúpt til að ná blessaða penslinum en þá lít ég líka út eins og stór rauður tómatur allveg að drepast, en samt sagði hún að þetta væri ekkert vont. Humm ég er bara aðeins að pæla í þessu en ég er nú samt ekkert að biðja hana um að hætta verð nú að leyfa þessari elsku að gera það sem henni finnst gaman að gera
það þíðir ekkert að mér finnist þetta stundum gott
Jæja þá vitið þið hvað Magga mín gerir á kvöldin
Athugasemdir
hehehehe þetta bara fylgir þeim
Ólafur fannberg, 14.3.2007 kl. 08:47
Kiddi minn þú ert bara svo mikill kroppur .. og pínu ýktur líka ...
Margrét M, 14.3.2007 kl. 08:59
Þú villt bara ekki viðurkenna það, nautnaseggur.
Sigfús Sigurþórsson., 14.3.2007 kl. 09:00
Ég held að það vita það allir sem lesa bloggið mitt að ég Ýki aldrei neitt
Kristberg Snjólfsson, 14.3.2007 kl. 09:07
ertu að kvarta ýkt mikið yfir mér ...
Margrét M, 14.3.2007 kl. 09:11
nei ekki hægt að kvarta yfir svona yndislegri konu
Kristberg Snjólfsson, 14.3.2007 kl. 09:17
Hahaha jaa sko sumar konur eru bara svona
Solla Guðjóns, 14.3.2007 kl. 10:22
Ólafur fannberg, 14.3.2007 kl. 10:50
Vatnsberi Margrét, 14.3.2007 kl. 19:42
Og þú situr auðvitað stilltur og prúður og hlýðir eins og lamb á leið til slátrunar meðan á þessum píningum stendur
Já mikill er máttur kvenna!!!
Ingvar, 14.3.2007 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.