Færsluflokkur: Bloggar
5.11.2008 | 10:41
Held að þetta sé gæfuspor fyrir heiminn
Til hamingju öll sömul er viss um að Barack Obama sé sá sem getur hrist eitthvað upp í því sem er að gerast í heiminum í dag
Obama: Þetta er ykkar sigur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.11.2008 | 18:25
Það er fátt sem toppar þennan perra
Ótrúverðugur prestur með kartöflu í rassinum
Að hans sögn var hann að festa upp gardínur á heimili sínu þegar hann féll aftur fyrir sig á eldhúsborðið. Svo óheppilega vildi til að hann féll akkúrat með rassinn á kartöfluna sem festist. Hann neitar því staðfastlega að hafa verið í kynlífsleikjum þegar kartaflan festist. Frá þessu greinir breska blaðið Telegraph.
Presturinn þurfti að gangast undir aðgerð til að losna við karföfluna en hann er nú á batavegi. Hjúkrunarfræðingurinn Trudi Watson á sjúkrahúsinu í Sheffield sem meðhöndlaði manninn segir að það sé ekki hennar að dæma um sannleiksgildi frásagnarinnar. Hún mælir þó eindregið gegn því að fólk leiki sér að eldinum. Aðgerðir geta leitt af sér sýkingar sem geta stofnað lífi fólks í hættu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem læknar á sjúkrahúsinu í Sheffield hafa þurft að fjarlægja aðskotahluti úr fólki. Áður hafa komið upp tilvik þar sem fólk hefur meðal annars fest svitalyktareyði og gúrku í endaþarminum.
Tók þessa frétt hjá dv.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.11.2008 | 11:49
Frábær dómnefnd
Saga getur verið harður dómari
Undir lok síðasta árs valdi Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins Jón Ásgeir Jóhannesson sem mann ársins í íslensku viðskiptalífi. Árið áður taldi blaðið að Hannes Smárason, fyrrum forstjóri FL Group, hefði staðið öðrum framar í viðskiptum hér á landi.
Sérstök dómnefnd sá um valið en á síðasta ári var Björgólfur Thor Björgólfsson í öðru sæti, Róbert Wessman, fyrrum forstjóri Actavis, í þriðja og Sigurjón Árnason, fyrrum bankastjóri Landsbankans, í fjórða sæti.
Dómnefndin fékk einnig það verkefni að velja bestu viðskipti ársins 2007 og niðurstaðan:
- Sala Novators á búlgarska símanum BTC,
- Icesave reikningur Landsbankans
- Hlutafjáraukning Baugs í FL Group væru bestu viðskipti ársins.
Dómnefndina skipuðu eftirtaldir:
Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
Ofangreindar uppl eru teknar af vefnum www.t24.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 19:45
Þetta ver bara flott
Hamilton heimsmeistari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2008 | 09:50
Passið ykkur á ef að það er hringt til ykkar úr nr 0088213220044
Ég fékk símtal í gærkvöldi frá númeri 0088-213220044 ég hafði sem betur fer lesið á visi þetta
Síminn varar fólk við að hringja til baka í númer sem byrja á 0088. Það landsnúmer er ekki til en fólk er rukkað um þúsundir króna þegar hringt er í númerin. Undanfarið hefur borið á því að fólk fær hringingu úr þessum númerum, 1-2 stuttar hringingar, og þegar hringt er tilbaka tapar fólk þúsundum króna á þessu eina símtali.
Það er greinilega einhver sem er að svíkja peninga af fólki með því að hringja og skella á," segir í tilkynningu frá símanum.
Einns gott að vera vel vakandi hverjir hringja í mann
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.10.2008 | 10:37
Við urðum fyrir bíl
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.10.2008 | 13:31
Brosið bara það þíðir ekkert annað
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2008 | 09:32
Hvað eigum við að gera í dag til að falla ekki í þunglyndi ?
Bloggar | Breytt 7.10.2008 kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.9.2008 | 08:31
GÆRDAGURINN
Ég á eftir að muna eftir gærdeginum meðan ég dreg andann hann á eftir að hafa mikil áhrif á líf okkar flestra til langframa.
Þetta eru ekki gleðilegar fréttir sem við erum búin að vera að hlusta á og lesa um með Glitni.
En gærdagurinn var líka gleðilegur það eru ekki allt neikvæðar fréttir, sumt verður eftirminnilegra en annað alltaf gott að horfa líka á jákvæðu hliðina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.9.2008 | 13:34
Námskeið á Bifröst
ÞETTA NÁMSKEIÐ ER EINGÖNGU FYRIR KARLMENN!!!
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.
KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður.
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA
UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi
Opin umræða.
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning.
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST Sönn saga frá
manninum sem spurði til vegar.
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI
OG MAKA Fyrirlestur og hlutverkaleikir.
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR Slökunaræfingar, hugleiðsla
og öndunartækni.
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR Komdu
með dagatalið þitt í tímann.
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.
Skráning er hafin í s. 666-9999.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)