27.12.2007 | 10:25
Áramóta Bomba
Jæja þá fer að líða að því að maður hleypir pínu lítið fram af sér beislinu
sko bara smá, en við erum að fara í dag að kíkja á terturnar okkar en við feðgarnir fluttum inn pínu lítið af bombum
ekkert rosa mikið en samt meyra en í fyrra en þá vorum við bræðurnir með sendibíl til umráða undir herlegheitin
Núna er stefnan tekin á að selja eitthvað af þessu
en við ætluðum reyndar að gera það í fyrra líka en svo bara tímdum við því ekki
En núna ÆTLUM VIÐ Þannig að ef að ykkur vantar alvöru bombur þá bara hafa samband, og ég get selt ykkur eitthvað, En ef að ekkert seilst verð ég náttúrulega bara að sjá um að sprengja þetta sjálfur ekki fer maður að geyma þetta til næstu áramóta En alla vega þá er kominn áramótafílingur í mig sprengjubeltið að verða klárt steikin komin í hús ekkert eftir nema bara að fara að lita himininn með smá bombum. Njótið svo áramótanna og farið varlega.
Athugasemdir
mig vantar eins og eina 100 megatonna kjarnabombu
Ólafur fannberg, 27.12.2007 kl. 10:37
Ja er ekki viss um að ég eigi minni en 200 megatonna
Kristberg Snjólfsson, 27.12.2007 kl. 10:55
he he
Margrét M, 27.12.2007 kl. 11:01
fæ hana,geturðu sent hana til NY sprengi hana þar
Ólafur fannberg, 27.12.2007 kl. 11:38
Jæa strákurinn kominn upp í þér.......ég veit nú ekki hvað segja skal um þetta sprengjuæði þitt en það vera örugglega mjög margir ánægir að sjá bomburnar þínar lýsa upp himininn........Farð þú varlega með allt þetta púður og njóttu þín í botn
Solla Guðjóns, 27.12.2007 kl. 16:40
Löggan fann tvo gáma með sprengiefni í RVK. fyrir einhverjum dögum. Var það nokkuð frá þér komið ????
Ingvar, 28.12.2007 kl. 15:37
Jú þeir voru frá méren þetta voru bara blöffgámarnir en þeir voru ekki með alvöru dótinu Ég náði þeim inn og er byrjaður að undirbúa affermingu á þeim núna.
Kristberg Snjólfsson, 28.12.2007 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.