4.11.2007 | 16:44
Bomburnar að koma
Fórum áðan til Inga bróður og Lauju og vorum við bræður að pæla í áramótunum en núna eins og í fyrra þá pöntuðum við smá slatta af sprengjum
í fyrra ætluðum við að selja hlut af tertunum en þegar við sáum hvað þetta var lítið
tímdum við ekki að selja neitt af þessu, en í fyrra vorum við með 3 eða 4 stór vörubretti full af tertum og fannst okkur það alls ekki nóg þannig að pöntunin var stækkuð töluvert núna
Stefnt verður á að vera hérna á Digranesveginum halda uppi stórskotahríð fram undir morgun
En í gærkvöldi var verið með einhverja sýningu hérna niðri í dal og upplifði maður þessa líka fínu áramótatilfinningu
En eitt skil ég bara alls ekki það er þegar fólk segir mig bilaðan sprengjukall
skil bara ekkert í þessu
ég er saklaus, en sko Ingi bróðir hann er þessi bilaði sko ekki ég
Athugasemdir
já já Kiddi minn , þetta er auðvitað bara smáræði em þið bræðurnir voruð að panta
Margrét M, 5.11.2007 kl. 08:40
3 eða 4 stór vörubretti full af tertum og fannst okkur það alls ekki nóg þannig að pöntunin var stækkuð töluvert núna
Ertu að meina þetta þetta?????
Solla Guðjóns, 5.11.2007 kl. 08:47
get sagt að hann er að meina þetta ..
Margrét M, 5.11.2007 kl. 08:50
Hva ætlar þú ekki að sprengja meira upp kallinn minn, bara stækkuð töluvert !!!!! þaðtekur því nú ekki að byrja með svona lítilræði :)
Jói E (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 14:33
Rétt hjá þér Jói er að spá í að bæta við en hef ekki fengið mjög góðan hljómgrunn hjá frúnni þar sem hún vill frekar nota peningana í eitthvað gáfulegt skil bara ekkert í henni
Kristberg Snjólfsson, 5.11.2007 kl. 15:18
Hey - þið eruð bilaðir - hoppið af spenningi yfir þessu - eins og litlir smástrákar - en þið euð ÆÐI Er þetta úr móðurættinni ??????
Lauja, 5.11.2007 kl. 17:20
Æjjjjj ég skil þá svo vel fátt er skemmtilegra en að kveikja og sjá bombuna.......en ja mikið mikið,,,,,,,
Solla Guðjóns, 5.11.2007 kl. 17:56
Lauja mín þú ert búin að ala Inga bróðir svona upp, ekki ætlastu til að þetta sé að koma úr minni fjölskildu, ég er BARA AÐ ÞESSU FYRIR INGA
Kristberg Snjólfsson, 5.11.2007 kl. 18:01
KABÚÚMMMMM !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ingvar, 5.11.2007 kl. 23:39
Ég á einhversstaðar handa þér pakka af stjörnuljósum síðan í fyrra !!!! (Þessi löngu)
Það borgar sig ekki að hleypa þér í neitt öflugara
Ingvar, 5.11.2007 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.