31.7.2007 | 12:50
Álagningarseðillinn kominn
Púff þá er komið að skuldadögum, en álagningarseðillinn kom inn um lúguna áðan og litla pumpan tók kipp þar sem ég vissi að ég myndi fá ansi feitan reikning frá skattmann.
Nú þegar ég loksins hafði mig í að kíkja á hvað ég á að borga þá bara hýrnaði heldur yfir mér þar sem ég slepp bara rosalega vel miðað við það sem ég var búinn að reikna með tók nefnilega ekki inn vaxtabætur þar sem ég hélt að ég myndi ekki fá neinar svoleiðis en skattmann sá ástæðu til að láta mig fá fullar vaxtabætur svoleiðis að þetta er bara fínt, allavega ætla ég ekkert að kvarta þó ég þurfi að borga samkvæmt álagningaseðli.
Athugasemdir
þú ert svo ríkur
mogm (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 13:20
Það er gott að skattmann var gjafmildur við einhvern ;)
Takk fyrir kíkið
Vatnsberi Margrét, 31.7.2007 kl. 13:23
Jibbí fyrir þig
Solla Guðjóns, 31.7.2007 kl. 13:40
þetta hefði getað verið betra ef hann hefði látið okkur hafa pening en þetta hefði líka getað verið verra ef hann hefðir rukkað meira svo að já best að vera bara ánæður
Margrét M, 31.7.2007 kl. 13:42
MogM jamm ég er ríkur á yndisleg börn og dásamlega eiginkonu, en peningalega er ég staurblankur en það er annað en Marteinn og Margrét 'Æ ég hef það svo sem ekkert slæmt en vill maður ekki alltaf meyra
Kristberg Snjólfsson, 31.7.2007 kl. 13:46
Meira..... æ ég veit ekki. Er ekki málið að vera sáttur við það sem maður hefur og þakklátur fyrir að hafa það þokkalegt. Það er amk mín lífsspeki
MogM (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 20:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.