23.7.2007 | 09:33
Vinna skrýtið fyrirbæri það
Þetta er orðið eitthvað nýtt fyrir mig að vinna en ég gerði þá vitleysu að lofa mér í vinnu já og ekki nóg með það heldur alla vikuna pælið í því ég verð ábyggilega alveg uppgefin Magga mín verður bara að fara að sofa ein þar sem ég dett ábyggilega útaf um leið og ég kem heim.
Það er nefnilega alveg með ólíkindum að maður þurfi að vinna til að hafa fyrir eyðslunni í manni
En þessa vikuna verð ég að vinna á fasteignasölunni Lyngvík að reyna að bjarga þeim heiðurshjónum Steinari og Sigrúnu sem eru alltaf að þvælast erlendis, eitthvað sem ég þekki alls ekki þannig að nú er bara að hafa samband við mig ég sel kofann ykkar og sel ykkur einhverja almennilega eign.
Það er hálf skrítið að vera kominn á skrifstofu en skrifstofan mín hefur verið Landcruiserinn undanfarna mánuði og hef ég bara verið ansi sáttur við það.
Jæja best að vita hvort maður kunni að selja fasteignir ennþá.
Athugasemdir
Æi !!! Kallgreyjið það er illa farið með þig að pína þig út í þessa vitleysu
En við verðum að treysta á það að Magga taki tillit til þess að þú verðir uppgefinn eftir þesssi ósköp og stjani við þig í nokkrar vikur á eftir meðan þú ert að ná þér aftur
Ingvar, 23.7.2007 kl. 12:45
það er spurning .... humm eða á ég að pína hann með í gönguferð með Bombu .. ha
Margrét M, 23.7.2007 kl. 14:30
Vinna ? Þú farinn að vinna ? Frábært hvað ertu búinn að "selja" mikið í dag ?
Björn Zoéga Björnsson, 23.7.2007 kl. 16:29
Solla Guðjóns, 23.7.2007 kl. 18:48
Hva þú hristir þetta nú bara út úr annari erminni, ég hef fulla trú á þér, þú getur þá alltaf hringt í 118 og fengið upplýsingar um hvað þú átt að gera :)
Jói (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 21:30
þú verður að fara vinna fyrir hjólinu
Vatnsberi Margrét, 24.7.2007 kl. 12:30
léstu plata þig til að vinna hehehe.....
Ólafur fannberg, 24.7.2007 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.