15.5.2007 | 08:56
París
Jæja þá er að fara að setja niður einhver föt og henda sér bráðum á flugvöllinn
en við hjónakornin förum í fyrramálið til Parísar. Hef verið að skoða veðrið
þar er sannarlega komið sumar bara 20 stiga hiti
Ég hef reyndar komið til Parísar áður en að er svo askoti langt síðan að þetta verður eins og að koma i fyrsta sinn, náttúrulega verð ég að láta líta út fyrir að ég sé gríðarlegur heimsborgari vegna þess að Magga hefur ekki komið þarna, búinn að finna alla helstu staðina sem vert er að fara á, reyndar fékk ég hjálp hjá Inga bróðir en hann leggst yfir allt er viðkemur utanlandsferðum og planar og skipuleggur, nú þar sem ég er búinn að vera á haus í verkefnum þá bara setti ég Möggu í þetta þannig að skipulag mitt fór fyrir lítið. humm en allavega þá ætlum við að hafa þetta nautnaferð gera allt sem okkur langar
Athugasemdir
góða ferð. Bið að heilsa öllum lafandi frökkum
Ólafur fannberg, 15.5.2007 kl. 12:31
biðuru líka að heilsa stuttum frökkum
Margrét M, 15.5.2007 kl. 12:47
Góða skemmtun :)
Vatnsberi Margrét, 17.5.2007 kl. 15:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.