18.4.2007 | 21:16
Nýr Toyota Landcruiser
Jæja við gátum ekki verið lengi án þess að eiga Landcruiser erum soddanns Toyota fólk að við sáum eiginlega ekkert annað en Crúsa og höfum verið á útkíki eftir góðu eintaki. Nú Magga er náttúrulega snillingur að fylgjast með bílum á netinu, og datt einn eðalvagn inn fyrir mistök hjá Toyota en hann átti ekki að fara á netið þar sem þetta átti að vera bíll fyrir starfsmann þar en Magga rak augun í hann og ég náttúrulega hafði samband við aðilana sem ég þekki og vildi þá svo óheppilega til fyrir þann sem átti að fá bílinn að hann var að slasa sig erlendis og var ekki með tryggingu þannig að hann greyið varð að hætta við og við fengum hann en þetta er 2003 árgerð af Toyota Landcruiser 120 lítur rosalega vel út og verðið var bara mjög flott, áttum alveg eins bíl reyndar 2005 árgerð en hann var líka töluvert breyttur en þessi er nánast óbreyttur. Jæja ég er að fara í bíltúr þannig aðnú er best að hætta að monta sig á nýja bílnum. Já ef þið viljið kaupa eðal Bens ml-320 árgerð 2002 þá getið þið náð góðum samningum við okkur erum sko alltaf sangjörn er við seljum bílana okkar
Athugasemdir
Þetta líst mér öllu betur á en útkeyrðann hundraðkall
Til hamingju með græjuna
En heldurru að krúsin ráði sæmilega við sígaunavagninn??
Ingvar, 18.4.2007 kl. 22:41
er ég snilli eða er ég snilli
Margrét M, 18.4.2007 kl. 22:53
500 þús og málið er dautt :)
Björn Zoéga Björnsson, 18.4.2007 kl. 22:54
500 þús og málið er dautt :)
Björn Zoéga Björnsson, 18.4.2007 kl. 22:55
Hvaaa, eru þið komin í bílabrask? hví létu þið ekki eins 1/2 Benzinn í timbur kallana, já eða bara alla? og málið dautt eins og Björn hér orðar það.
Sigfús Sigurþórsson., 19.4.2007 kl. 01:23
til lukku með leikfangabilinn hehehe....á að koma i spyrnu?
Ólafur fannberg, 19.4.2007 kl. 09:29
Gleðilegt sumar og til hamingju með cruisinn
Vatnsberi Margrét, 19.4.2007 kl. 10:00
og gleðilegt sumar gleymdi því áðan
Ólafur fannberg, 19.4.2007 kl. 11:23
Gleðilegt sumar lítilláti snillingur og fjölskilda.
Sigfús Sigurþórsson., 19.4.2007 kl. 11:53
Gleðilegt sumar og til hamingju með jeppan.
Solla Guðjóns, 19.4.2007 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.