11.3.2007 | 10:36
X factor
Ég var að horfa á xfactor á föstudaginn, þar var kynnirinn hún Halla Vilhjálms afar glæsileg að vanda
Kjóllinn sem hún var í var alveg hrikalega flottur þannig að ég dró betri helminginn minn með mér í gær í búðina þar sem þessi flotti kjóll fæst ( man bara ekki hvað hún heitir verslunin ) en allavega þá mátaði Magga mín að sjálfssögðu kjólinn og var hún að sjálfssögðu miklu flottari en Halla, en það voru bara svo margir flottir kjólar á konuna að ég endaði með að kaupa allt annan kjól en upphaflega stóð til, gaf konunni þennan kjól í tilefni dagsins ( bara að gamni )
Hún var ekkert smá flott í þessum kjól og var sjálf að rifna úr monti í allan gærdag enda afar glæsileg.
Athugasemdir
flottur á því....
Ólafur fannberg, 11.3.2007 kl. 10:44
Æj þú ert algert æðifrábært hjá þér.Yndislegt að gleðja ástina sína með augljósri ást
Solla Guðjóns, 11.3.2007 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.