Spennufall

Það er gríðarleg spenna á heimilinu vegna ákvörðunar að taka hund inn á heimiliðWhistling Ekki það að mig hafi neitt langað í hundHalo heldur gerði ég þetta náttúrulega bara fyrir Möggu mína og barnanna Cool En allavega þá var ákveðið í gær að krakkarnir mættu segja frá þessu, en það mátti ekki segja fyrr en að þetta væri orðið alveg 100%. Stelpurnar urðu alveg spinnigal hoppuðu og skoppuðu, fengu að hringja í mömmu sína afa og ömmu og allar vinkonur, þær voru gjörsamlega alveg trítilóðar greyinLoL en við vorum búin að segja þeim að þær mættu ekki segja neinum fyrr en eftir helgiW00t þær voru að sjálfssögðu alveg eins og hengdar upp á þráð áttu afar erfitt með að segja ekki frá Sick kannski ekki skrítið, þær sungu Bomba Bomba Bomba í allan gærdag og voru alltaf að segja Bomba þannig að engin skildi neitt í þeimLoL Ég sé greyin í anda ef að þær hefðu þurft að þegja fram yfir helgi, þær myndu trillast Crying en núna þegar að þær geta sagt frá þá er allt á fullu hjá þeim syngja um Bombu, hringja út um allt og núna er komið annað vandamál en það er að þær þurfa að bíða í 3 vikur þangað til að við fáum  hana Bombu til okkar W00t Þegar að þær vöknuðu þá var það fyrsta sem sagt var að þær bara dreymdu bombu he he   allavega er byrjað að plana hvað á að gefa henni í páskagjöf, hvað á að gefa í jólagjöf og svo fammvegis. Jæja ég er ekkert spenntur sjálfur vona bara að Magga mín sé ekki að fara yfirrum af speningiHalo

Bomba


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vatnsberi Margrét

Skil vel að stelpurnar séu að fara yfir um af spennu En held nú að þú sért ekki langt frá þeim í spennu frúin virtist líka vera hálf hissa hvað hún er spennt Þetta verður bara gaman

Vatnsberi Margrét, 7.3.2007 kl. 08:36

2 Smámynd: Ólafur fannberg

með öðrum orðum öll að farast af spenningi

Ólafur fannberg, 7.3.2007 kl. 09:03

3 Smámynd: Margrét M

já, þig langaði auðvitað ekkert í hund, það var einmitt þess vegna sem við fáum hund ,ekki spurning

Margrét M, 7.3.2007 kl. 09:11

4 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Ja ég geri allt fyrir ykkur fer meira að segja í hundana fyrir ykkur

Kristberg Snjólfsson, 7.3.2007 kl. 09:56

5 Smámynd: Ingvar

Þetta er eiginlega orðið hálfgert hundalíf hjá þér

Ingvar, 7.3.2007 kl. 11:24

6 Smámynd: Solla Guðjóns

líf og fjör á bænum

Solla Guðjóns, 7.3.2007 kl. 13:58

7 Smámynd: Björn Zoéga Björnsson

Til hamingju elsku dúllurnar mínar  þetta er mjög bindandi en mjög mjög gaman  hundurinn okkar hann Felix er algjör fjörkálfur og þarf að hreyfa sig en frábær félagi - gangi ykkur vel

kveðja

Björn Zoéga

Björn Zoéga Björnsson, 8.3.2007 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband