Færsluflokkur: Bloggar
23.12.2007 | 00:19
Skata skata skata skata
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.12.2007 | 09:48
Bomba mótmælir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
10.12.2007 | 15:48
Nú er bara að vona að konan lagist
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
7.12.2007 | 18:12
Ritskoðanir atvinnurekanda
Mér finnst ótrúlegt að sumir eru hreinlega að ritskoða það sem er skrifað hér á blogginu og heimta að blogg séu fjarlægð ef að þau henta ekki viðkomanda.
En konan mín bloggaði um ----------------------------------------------------------------- ja einns gott að setja það ekki inn þar sem að það getur haft áhrif á hana.
En málið var að yfirmaður hennar taldi ekki við hæfi að hún bloggaði um það sem hún var að blogga um, og verð ég að segja að þetta var slíkur smámunir að ég trúði varla að hún væri beðin um að fjarlægja skrifin sem hún setti inn.
Það er greinilegt að það eru ekki bara baugsfeðgar og Jón í Byko sem geta látið stoppa blogg og blaðaútgáfu heldur líka vill ´þessi yfirmanneskja konunnar minnar ráða hvað stendur á blogginu hennar.
Kannski hefur hún fengið hugmyndina hjá Nonna í Byko veit ekki , en mér finnst þetta fáránlegt.
En annars hafið góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.12.2007 | 10:46
Ungfrú heimur og Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
26.11.2007 | 14:32
Ef ég væri ríkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
21.11.2007 | 08:09
Rottur á Kínastað
Púff núna er ég ekki viss um að ég fari oftar að borða á ----- en þar hafa fundist fleiri en 17 stk af stærstu gerð af rottum Þessi veitingastaðakeðja hefur verið sögð besta Kínverska veitingahús á landinu þrifnaður og slíkt til fyrirmyndar EN nú hefur eitthvað mikið gerst allt er orðið vitlaust í húsinu þar sem rotturnar og annar sóðaskapur hefur fundist, en talið er að þær hafi fjölgað sér hratt, haft nóg af hrísgrjónum og öðru góðgæti til að borða En allavega fer ég ekki á Suðurlandsbraut nr - að borða á næstunni maður gæti kannski fengið rottukjöt í rétti dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
20.11.2007 | 08:15
Getur maður verið í verra formi ?
Þó að ég sé í betra líkamlegu ástandi núna en ég hef verið síðustu tuttugu árin þá er maður nú bara algjör aumingi en um helgina fór ég að setja upp jólaljós á húsið og jú ég þurfti að príla upp í stiga fara 100 ferðir upp og niður á meðan ég var að hengja ljósin upp, nú þetta eru kannski einhverjir 5 metrar þannig að ekki er verið að tala um verulegt príl, en ég er þannig núna að ég á bara erfitt með gang er eins og að ég sé búinn að vera í þrælabúðum þar sem ég hef verið píndur áfram af miklu harðræði ( hvað gerðirðu mér Magga mín ) harðsperrurnar í fótunum á mér eru slíkar að ég bara á erfitt með að labba upp stigann hérna heima. Held að þetta sýni að maður verður líka að taka aðeins á hreyfingu. En ég tek það fram að þó ég hafi hengt upp jólaljósin þá er ekki búið að kveikja á þeim en mér finnst að það sé nóg að kveikja um mánaðarmótin, en mikið asskoti er gott að eiga ekki eftir að setja þau upp get svo látið mér kvíða fyrir að taka þau niður á nýju ári Nei nei þetta er nú ekkert rosalegt tók heila tvo tíma að setja upp þannig að það er ekki eins og að maður hafi verið lengi að þessu. Jæja nóg bull í byli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.11.2007 | 15:52
Ábyrgðarleysi
Ábyrgðarleysi já mér finnst það algjört ábyrgðarleysi af forsætisráðherra landsins að ráðast á verktaka og ráðleggja fólki að kaupa ekki fasteign á meðan verðið er svona hátt "" Ég sé svona fyrri mér núna að hann fari að senda sömu skilaboð að versla ekki bensín þar sem verðið er orðið allt of hátt nú og eða þegar mjólkin fer upp úr öllu valdi að þá muni hann koma og ráðleggja fólki að versla ekki mjólk fyrir börnin þar sem hún sé of dýr. Mér finnst persónulega þetta ekki vera rétta af Hæstvirtum forsætisráðherra að ráðast svona gegn einni stétt sem hann er að gera þarna, ég tel þetta ekki hafa tilskiluð áhrif og ættu þeir að skoða aðra þætti heldur en að skella skuldinni á fasteignamarkaðinn, Þenslan á fasteignamarkaði er jú að stóru leiti út af framkvæmdum sem ríkið hefur komið á t.d virkjanir og f.l það er eins og að ef að íbúðaverð lækki þá muni allt verða svo æðislegt, ég held að á meðan það er þetta mikil eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði mun verðið halda áfram að hækka, en það er alls ekki rétt af Forsætisráðherra að koma með svona sem grefur undan einni stétt mér finnst það persónulega algjörlega fáránlegt af æðsta strumpi landssinns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.11.2007 | 11:12
Góður
Fyrir ári síðan lét ég skipta um alla glugga í húsinu okkar. Ég keypti þessa dýru tvöföldu með orkusparandi einangrunarhúðinni. Svo í gær, ég meina það sko, hringdi verktakinn sem seldi mér rúðurnar. Hann sagðist hafa lokið verkinu fyrir einu ári, og ég hefði enn ekki borgað honum eina krónu.
Þó ég sé ljóska þarf það ekki að þýða að ég sé nautheimsk. Ég sagði honum að flinki og vel talandi sölumaðurinn hans sem talaði við mig, hefði fengið mig til þessara kaupa á grundvelli þess að þessar rúður myndu borga sig upp sjálfar á einu ári.
Hallóó!? Núna er nefnilega liðið nákvæmlega eitt ár!
Þá kom löng þögn í símann, svo ég lagði bara á.
Hann hringdi vitanlega ekki tilbaka, hann vill náttúrlega ekki viðurkenna hversu vitlaus hann er!
Kveðja mamma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)