Færsluflokkur: Bloggar

Þvílíkur aumingi

Ég var að horfa á þáttinn meistarann í gær þar sem Illugi Jökulsson fór á kostum er greinilega gríðarlega klár í kollinumCool  en mér finnst hann algjörlega hafa eyðilagt góða keppni, hann þorði ekki að leggja örfá stig undir þannig að mótkeppandi hans gæti hugsanlega átt möguleika á að ná honum að stigum, hann sýndi að mínu viti þvílikann heigulsskap, mér finnst að þeir / þær sem taka þátt í þessari kepmi ættu að þora smá. Æi ég er bara fúll yfir að hann þessi maður sem er gríðarlega vel gefinn að hann eyðileggi þáttinn með svona , þó svo að hann megi sleppa því að leggja undir þá er þetta bara hluti af keppninni finnst mér. Ég vona að hann detti út næst humh

Spennufall

Það er gríðarleg spenna á heimilinu vegna ákvörðunar að taka hund inn á heimiliðWhistling Ekki það að mig hafi neitt langað í hundHalo heldur gerði ég þetta náttúrulega bara fyrir Möggu mína og barnanna Cool En allavega þá var ákveðið í gær að krakkarnir mættu segja frá þessu, en það mátti ekki segja fyrr en að þetta væri orðið alveg 100%. Stelpurnar urðu alveg spinnigal hoppuðu og skoppuðu, fengu að hringja í mömmu sína afa og ömmu og allar vinkonur, þær voru gjörsamlega alveg trítilóðar greyinLoL en við vorum búin að segja þeim að þær mættu ekki segja neinum fyrr en eftir helgiW00t þær voru að sjálfssögðu alveg eins og hengdar upp á þráð áttu afar erfitt með að segja ekki frá Sick kannski ekki skrítið, þær sungu Bomba Bomba Bomba í allan gærdag og voru alltaf að segja Bomba þannig að engin skildi neitt í þeimLoL Ég sé greyin í anda ef að þær hefðu þurft að þegja fram yfir helgi, þær myndu trillast Crying en núna þegar að þær geta sagt frá þá er allt á fullu hjá þeim syngja um Bombu, hringja út um allt og núna er komið annað vandamál en það er að þær þurfa að bíða í 3 vikur þangað til að við fáum  hana Bombu til okkar W00t Þegar að þær vöknuðu þá var það fyrsta sem sagt var að þær bara dreymdu bombu he he   allavega er byrjað að plana hvað á að gefa henni í páskagjöf, hvað á að gefa í jólagjöf og svo fammvegis. Jæja ég er ekkert spenntur sjálfur vona bara að Magga mín sé ekki að fara yfirrum af speningiHalo

Bomba


Svona á ég frábæra konu

Allt lætur hún Magga mín eftir mér þessi elskaInLove  haldið þið ekki en að hún hafi bara gefið mér bombu Smile  en þetta er Dverg schnauzer  eða Snasi. Er hún Bomba ekki flott en við eigum eftir að gefa henni nafn nema að þetta verði bara nafnið á henni.Picture%20009Picture%20010

Nú eru fréttir

Við hjónin höfum ákveð að ---------- og er mikill fögnuður í fjölskyldunni, ég bara má ekki segja strax hvað við höfum ákveðið að gera en mun örugglega koma með það um leið og ég get   he heLoL 


Borgar sig að vera hreinskilinn

Þessi er allavega ekki að reyna að fá peninga á fölskum forsendumLoL 

funny_pic05

 

 


Held að það væri ekki vitlaust að vera í bandi

 Maður fær pínu í magannCrying


Skál

Þar sem ég hef dregið úr drykkju hef ég verið að velta því fyrir mér að fá mér eitt glas af rauðvíni á dag, mér lýst ágætlega á þessa stærð.Whistling

Large beer glasses


Svo vilja menn kött ! maður verður bara hræddur

væri ekki allveg viss hvort ég ætti að hlaupa eða W00t ef ég mætti þessum 

 

Happy Silly Day!


Sumir þurfa að ganga í gegn um ótúlega hluti

Ég var að lesa blogg hjá hetju Íslands henni Ástu love http://www.123.is/crazyfroggy/ þar segir hún frá nýjustu niðurstöðum varðandi krabbann, það er ekki uppörvandi fyrir hana að fá þessar fréttir en samt alveg ótrúlegt hvað þessi stúlka er sterk. Allavega alveg á hreinu hún átti alveg titilinn skilið að vera kosin Íslendingurinn 2006

Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn

Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn 

Bara smá pæling " mér finnst þetta passa ansi vel við ráðamenn okkar í dag.

Nú svo er líka.    Betra er að drepa tímann en sjálfan sig.

Og þetta er líka allveg klárt.   Betra er að sofa hjá en sitja hjá.

WhistlingHalo


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband