Einn góður

Maður einn keyrði eftir fáförnum vegi, þegar hann allt í einu sá nunnu standa við vegarbrúnina og veifa merkis um að hana vantaði far. Maðurinn stoppaði og bauð henni far með sér. "Ertu að fara langt?" spurði hann nunnuna. -"Að næstu krossgötum", svaraði nunnan. -"Þá verð ég að fá það hjá þér", sagði maðurinn, frekar í gamni en alvöru. En honum til mikillar undrunar tók nunnan vel í þetta og sagði að hann myndi fá sitt er þau kæmu að næstu krossgötunum. En hann yrði að taka sig aftan frá. Þetta samþykkti hann og keyrði áfram þar til að krossgötunum kom. Þar fóru þau bæði út úr bílnum. Nunnan fletti upp um sig pilsinu og beygði sig fram með afturendann að manninum, sem var ekki lengi að gera þarfir sínar. Að þessu loknu sagðist hann gjarnan vilja hitta hana aftur og spurði hvað hún héti. -"Ég heiti Jón Jónsson, og er að fara á grímuball," var svarað...

10.000

Hver verður nr 10.000 ? Þó maður nenni lítið að blogga þá er nú samt komið að því að 10.000 aðilar hafa kíkt á þessa blessuðu síðu. En annars er bara fínt að frétta af þessum vígstöðvum útilegur flestallar helgar og sumarfríið framundan. Krakkarnir allir komnir til landsins en ungarnir okkar fóru erlendis´og var þá nú hálf tómlegt í kofanum hjá okkur. En núna fer fjörið að byrja aftur Bjarni kominn verður næstu 4 vikurnar hér og svo koma stelpurnar í næstu viku þá verður litla sæta húsið okkar hengt aftaní jeppann og brunað á eftir sólinn, er svona að vona að sólin verði á vestfjörðunum en mig langar að feðrast um vestfirði þetta árið. En allavega látið vita hver verður nr 10.000 en það verða engin verðlaun í boði samt Wink

Það er semsagt gestur nr 12 í dag sem er 10,000 sé núna að það sést ekki


en hvernig er þetta hægt

broslegtTounge

 

http://www.metacafe.com/watch/1457759/tricky_chick/


Einn ansi góður

Joe and Bill were deer hunting all day without seeing a single deer.
After Walking for a few hours Joe tells Bill he has to stop and take a shit.
Bills says he will keep walking and circle around and meet back up with him in 30 min. at the truck
Joe watches him walk out of sight and sits down on a fallen tree with his pants down. After sitting there for a while he falls asleep with his pants down around his shoes.
In the mean time Bill shot a deer and was dragging it back to his truck when he notices that Joe is asleep on the log with his pants around his ankles, so he decides to play a joke on him by gutting the deer and putting the guts under his bare ass.
When Bill gets back to his truck he falls asleep in the front seat.
20 min. goes by and Bill is woke up by Joe running as fast as he could through the woods.
When Joe got to Bill, Bill asked "why he looked like he has just seen a ghost?"
Joe said, "I went to take a shit and I was soo tired that I must have fell asleep and shit my guts out. If it wasn’t for the grace of God and a greasey stick I wouldn’t have got them back in."

Óhæfir rekstraraðilar á Hellishólum

Ég verð að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með fyrstu kynni mín af því að fara á Hellishóla. Við fórum um helgina á Hellishóla þar sem okkur sýndist staðurinn hafa mikið uppá að bjóða, Staðsetningin ágæt og að því er virtist vel staðið að málum, en annað átti eftir að koma í ljós, Þetta byrjaði með því að það var okrað á okkur með gistingu fyrir tvær nætur en það kostaði 6000 kr fyrir okkur Möggu og krakkana 3, okkur var sagt jú það er svo margt inni í þessu sko “ það eru heitir pottar sem allir mega fara í og svo kostar sko ekkert í sturturnar, jú það voru heitir pottar þarna sko tveir sem voru alltaf fullir enda mikið af fólki sem hafði látið blekkjast með að fara þarna, jú sturtur voru til staðar tvær karlamegin, held að það sé sama hjá konunum, þið getið ímyndað ykkur hvort þetta dugi fyrir kannski 5-600 manns. Jú svo var líka þetta frábæra rafmagnstengi sem við borguðum 1000 kr fyrir það væri sko alveg pottþétt. Við tókum eftir því stuttu eftir að vð vorum búin að koma okkur fyrir að það byrjaði vesen með rafmagnið, sló allt út og við urðum að kynda allt með gasinu ( en aðalástæðan fyrir því að við kaupum rafmagnstengingu er að þá þurfum við ekki að nota gasið ) Ég hélt hreinlega að þetta væri bara smá tilfallandi vesen en annað átti eftir að koma í ljós, rafmagnið fór með reglulegu millibyli og var lengst inni í svona 40 mínútur ímynda ég mér, um nóttina var rafmagnið ekkert inni og við þar af leiðandi að kynda með gasinu. Ég ákveð að hringja daginn eftir í staðarhaldarann,  ( geri ráð fyrir að ég hafi verið að tala við staðarhaldarann þar sem ég bað sérstaklega um yfirmanneskjuna ) og spurði hvort ég ætti að koma til þeirra til að fá endurgreiðslu fyrir rafmagnið eða hvort þau vildu koma með greiðsluna til mín. Þá fékk ég albestu skýringu sem ég hef heyrt lengi þ.e.s. ég ætti sko barasta að vera ánægður með það að ég hafi haft eitthvað rafmagn þau væru búin að vera alla nóttina að vesenast í þessu og ég skildi bara vera ánægður hún byrjaði strax með að æsa sig vildi greinilega ekkert við mig tala, ég sagði þá við hana að þau væru greinilega ekki að vina vinnuna sýna ( hefði kannski mátt orða það öðruvísi ) þá skellti kellingin á mig,  humm ég ákvað að hringja til baka og sagði fyrirgefðu ég held að það hafi slitnað samtalið áðan eða skelltirðu kannski á ? spurði ég, kellingin sagði þá að hún hafi skellt á mig þar sem ég hafi verið með dónaskap, ( ef að aðili sem er í þjónustu getur ekki tekið við krítík ætt hún að snúa sér að öðru)   málið væri að það væru svo margir sem tengdu sig inn á fjöltengi við að það slægi allt út, ég spurði í fyrsta lagi hvort henni fyndist þetta vera eðlileg vinnubrögð að skella á viðskiptavin og hinsvegar hvort ég ætti þá bara að vera ánægður með að borga fyrir rafmagnið þar sem einhverjir aðilar úti á svæðinu væru að tengja sig inná lögnina þannig að hún þyldi ekki álagið, enn og aftur sagði hún bara já ég ætti bara að sætta mig við það og skellti aftur á mig. Mér finnst það ekki líklegt að þessi kona myndi sætta sig við það að fara út að borða og að náunginn á næsta borði æti meirihlutann af steikinni hjá henni og hún þyrfti að borga fyrir steikina þar sem steikin hafi verið svo góð og að þetta væri bara  frekja í henni ef að hún myndi kvarta. Ég verð að segja það að ég var EKKI ókurteis við þessa konu hringdi einfaldlega til að fá endurgreiðslu þar sem ég fékk ekki það sem ég keypti ( geri ráð fyrir að fleiri hafi gert slíkt hið sama ) Þessi manneskja ætti alls ekki að vera í svona þjónustuhlutverki þar sem það er greinilegt að hún er ekki starfi sýnu vaxin. Þessi staður hefur upp á margt að bjóða það er ekki spurning, en það þarf klárlega að skipta út aðilum sem reka staðinn þannig að staðurinn fái að njóta sýn, einnig þyrfti að bæta töluvert við af salernum þar sem þau sem eru út á svæðinu duga engan vegin fyrir allan þennan fjölda.  Ég ætla að vona að þessi manneskja sem þetta rekur komi til með að taka til í eigin húsi og breyta framkomu sinni gagnvart viðskiptavinunum, ég veit að ég hef ekki áhuga á að fara á þennan stað aftur og mun láta alla vita sem í kringum mig er af hvernig móttökur maður fær hjá þessum aðilum. Ég mun senda þetta bréf til staðarhaldara einnig mun ég setja þetta inn á netið þannig að aðrir geti lesið hvernig tekið sé á móti manni á Hellishólum

  

Húsafell í frábæru veðri

Fórum eins og við var að búast með litla húsið okkar í eftirdragi í Húsafell, lögðum af stað upp úr kl 7 á föstudag og stefnan tekin í Borgarfjörð: Tókum stöðuna á vindi undir Hafnarfjalli þegar við komum upp úr göngunum, þar sem við viljum ekki taka neina sénsa með að lenda í veseni með þetta litla hús okkarWhistling  það var ótrúlegt hvernig veðrið var þarna það var nefnilega blankalogn þar til við vorum komin ca við flugvöllinn undir Hafnarfjalli þá var orðið ansi hvasst W00t  það slapp samt til og litla hjartað mitt tók ekkert rosalega kippi en manni líður ekkert vel með þetta hangandi aftaní þegar blæs hressilega. Húsafell tók á móti okkur með lúðraþyt og smá blæstri Tounge  en við fundum okkur góðan stað sem var rétt við einn minnsta hund landsins Whistling  eða kannski var það stærsti hundur landsins Smile  held það hreinlega, þetta vara ekki nema 8 mánaða Rottweiler grey en stærðin mar vá, hann var alveg  ofsalega góður greyið Wink  en litlu hetjurnar mínar létu hann leggjast fyrir sig, þær vildu ekkert vera að láta svona flikki ráða yfir sér, líktist einna helst Davíð og GolíatWink  get svarið það þetta líktist kálfi. Grillið var tekið fram og lambalæri sem ég var búinn að marinera fyrr í vikunni var skellt a logann en þetta var marinerað með appelsínum, hvítlauk og einhverju fleira, það var etið með bestu lyst rétt áður en við horfðum á söngvaborg e ég meina söngvakeppnina. Var rosa svekktur þegar Ísland Angry  fékk stigW00t en ég hefði viljað sjá fýlupúkann Friðrik ómar verða rasskeldur almennilega Smile  ( verst er að honum þykir það ábyggilega gott ) Whistling  Ekki það að hann sé lélegur söngvari heldur er hann bara svo mikill fýlupúki að það hefði verið gaman að sjá hann væla eins og í fyrra þegar hann komst ekki áfram þá varð hann svo hrikalega fúll að það var eiginlega ekki fyndið Grin  En allavega þá var þessi helgi bara asskoti góð fengum frábært veður er reyndar soldið ´rauður núna lít út eins og rautt epli í framanBlush  var víst eitthvað of lengi með andlitið í sólinni Blush  og svo er maður farinn að skoða spánna fyrir næstu helgi vonar bara að það verði hægt að fara aftur eitthvað í þokkalegu veðri.

Ekki öfundsverð þessi

Verð að segja að þetta er ótrúleg lesning, hefði ekki viljað lenda í þessu.

http://www.123.is/hvolpar/


Fyrsta ferð sumarsins

Jæja þá er fyrsta ferð sumarsins að bakiTounge  En á laugardaginn fórum við skötuhjúin ásamt Bjarna Frey á tjaldvæði við Fossatún en það er við Grímsá, fallegur staður og þokkaleg aðstaða. Hittum Gunna og Kristínu en þau voru að prufukeyra fellihýsið sem þau fengu sér eftir að hjólhýsið tókst á loft heima  hjá þeim síðasta veturW00t skil ekkert í þeim að hafa ekki frekar fengið sér nýtt hjólhýsi, en það er svo margt sem ég skil ekki hjá þeim þannig að ég þarf ekkert að skilja þetta Grin  Veðrið var svosem ekkert æðislegt en slapp þó til. Fórum svo á sunnudag í heimsókn til frænku hennar Möggu í sveitina. Allavega þá erum við komin í ferðagírinn og vonandi komum við til með að geta ferðast nóg í sumarGrin  En fátt er skemtilegra en að vera með minni konu og börnum einhversstaðar á þvælingi maður kemur svo endurnærður til baka og ekki veitir manni af því Wink

Rigning og rok gat verið

Þetta er gjörsamlegast óþolandi loksins þegar maður ætlar að fara með hjólhýsið og njóta Íslands þá er náttúrulega rigning og rokAngry . Ég sem var farinn að vona að maður gæti lokssins eftir langan og strangan vetur farið með litla hjólhýsið mitt eitthvað út í buskann en nei nei veðurguðinn ákvað að vera leiðinlegur við mig og blása og grenja mestalla helginaAngry  Þannig að það lítur út fyrir að við verðum bara heima og ímyndum okkur um að vera í hjólhýsinu eða kannski förum við bara út í hjólhýsið og sofum eina nótt í því til að láta sálartetrið verða aðeins sáttaraTounge . Allavega þið öll njótið helgarinnarSmile ég geri það ábyggilega ekki Crying  Æ jú get nú ekki farið í fýlu yfir þessu er það nokkuð

Ja hérna

Funny%20Boat%2001

 

 

Þetta er nýjasta útgáfan af flugmóðurskipum bandaríkjamanna. Greinilega ekkert til sparað þarnaTounge

 

 

 

 

 

 

Table%20Boat

 

 

Og þetta er nýjasta gerð hraðbjörgunarbáta kanansTounge

 

 

 

 

 

 

 honeymoon_pic

 

 

 

Þegar makinn leggur svona og kallar elskan komdu aðeins út þá veit maður að það er farið að hrikta í sambandinuSmile

 

 

 

 

 

 

PJs-787979

 

 

 

Ææ en hún er allavega komin útWhistling en hvar er kallinn ?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband